Jæja
komin á tour í Þýskalandi á double deck-er og þá fyrst er
nægur tími til að skrifa smá um líðandi
stundir! J
Síðast þegar
ég skrifaði var ég staddur í Póllandi og átti þá eftir að gera 2
gigg þar... Pólland: Þetta land kom mér
virkilega á óvart og var allt öðruvísi enn ég hafði ímyndað
mér. Hélt að það væri mikil fátækt þarna ofl.
enn svo var ekki að sjá... Það síðast sem ég
sagði frá Póllandi var að við værum að spila í Varsjá og ég hefði
fengið mail sem stóð bara MAX 8 Lights! Þeir
voru að meina að þeir gætu bara skaffað max 8 róbóta, síðan voru
18stk af LED par og aðeins 4 reykvélar. Tungumál
Örðuleikar voru svolítið að hrjá okkur þar sem það var bara einn
gaur sem talaði ensku og varð hann að hlaupa á milli og túlka fyrir
alla. Já og svo fyrir þá sem eru að spá í að
fara eitthvert erlendis til að versla þá mæli ég með Póllandi, yfir
fullt af mollum og búðum. Þarna er allt allavega
4-5 sinnum ódýrara enn heima, t.d. Diesel gallabuxur 3500kr. Ísl,
jakkaföt frá 5000kr., 42”plasma sjónvarp 55.000 kr... ég gæti talið
upp endalaust... ég var að verða vitlaus þarna að geta ekki verslað
neinn raftæki og þau svona miklu ódýrar enn
heima... Keypti reyndar geislaspilara í bílinn,
hann kostaði 19þús úti enn 89þús.
Heima!Annars var dvölin þarna mjög góð og hef ég mikin
áhuga á að fara aftur
þangað...
Næstu gigg á
eftir Póllandi áttu að vera London og 2 á
Glastonbury...Enn við lentum í því að
flugvélin bilaði hjá Iceland express og því varð seinkun á
fluginu. Ákveðið var að senda mig og
skugga með Icelandair til London-ar til að fara og græja allt
saman því miðað við seinkunina væru yrði hópurinn aldrei
kominn á staðin fyrr enn um kl.9 um
kvöldið. Svo þegar ég og skuggi vorum
búnir að fluga í nær 3 tíma og taka lesti frá vellinum og inn
í borg ca. 1 klst, rölta í 20 mín... þá er hringt og okkur
tjáð það að það sé búið að Cancel allri
helgini. Flugið verði seinna enn haldið
var og að rútan sem átti að fara með okkur á Glastonbury
bilaði og það var ekki til önnur, þar sem þetta var stærsta
helgin hjá Tour bus fyrirtækjum í evrópu.
Ég og Skuggi ákváðum að fá okkur bara að borða, fara síðan og
finna hótelið sem stelpurnar áttu að vera á og leggja
okkur. Þegar við vorum að koma inn á
hótelið er aftur hringt og okkur tjáð að við séum á leiðin á
glastonbury, enn bara til að gera 1 gigg.
Um kvöldið þurftum við að taka lestin yfir til Stansted og
tókum á móti flokknum, það fórum við með 48sæta rútu á
eitthvað vegahótel sem var ekki alveg
málið.
Daginn eftir var brunað beint á Glastonbury
eða 4 tíma keyrsla... þegar við komum þangað var allt að
breytast í drullusvað og því mátti rútan ekki fara inn á
svæðið. Okkur var skutlað af Landrover
jeppum á sviðið okkar með allan gírinn.
Það fyrsta sem tók á móti okkur þegar við stigum út úr
bílunum var mígandi rigning. Þá dugar
ekkert nema sér Íslenskir ullarsokkar og gúmmí
skór J

Sviðið var
mjög flott, ljósaborði sem vara þarna var Diamond 4 og er alveg
eins að vinna á hann eins og Pearl. Þegar GusGus byrjaði að spila
var um 80manns fyrir framan sviðið, þegar fyrsta lagið var hálfnað
voru komnir á bilinu 7-8þús manns, enda missti crew-ið andlit-ið.
Einn þeirra sagði: “hvað gerðist eiginlega það er ekki búin að vera
nokkur hræða hérna í allan dag”. Þau stóðu sið frábærlega og var
liðað alvega ð missa það þarna. Eftir að við
vorum búin að spila var laus tími í rúma 5klst.
Svo þegar það “átti” að fara og skutla okkur var engin bíll,
Ástæðna fyrir því var sú að A vaktin gleymdi að látta B vaktina
vita að okkur hefði verðið skutlað frá Bus-parking og því var engi
bíl til staðar. Eftir 3 tíma bið og bla var
okkur loks troðið í einn Landrover. Svo þegar
maður kom í rútuna var bara haft all skipti á fötunum þau voru
ógeðsleg... Og sem betur fer var ekki annað gigg
daginn eftir! JÞað sem sem lýsir
Glastonbury 2007 best er held ég DRULLA
J
Næsta ferð var
til Rússlands. Við flugum til Köben með Iceland
express og þaðan til Mosku með AIRFLOT. Við
vorum á saga class og var það bara svona allt í
lagi... JÉg, Skuggi, Stebbi og Biggi gistum
á 5 stjörnu hóteli sem var ramm girt og með mega Öryggisgæslu enda
voru einhverjir hershöfðingjar að gista þarna.
Ég veit eiginlega ekki hvernig við enduðum á þessu hóteli miðað við
allt sem var að gerast á hótelinu. Daginn eftir
að við komum var ég sóttur kl.10 og mér skutlað á venue-ið þar sem
ég fékk 8 tíma til að program, ég fékk full size grandmaborð og
verð ég bara segja að það er geggjað að vinna á
það. Það voru um 100 mac2000 þarna + fullt af
ledi + LED skjár ofl...

Það var farið
með mann eins og kóng eða eitthvað því líkt sem var hugsað vel um
mann, endalaust verið að spurja hvort það væri ekki allt í lagi
ofl...
Um kvöldið
eða um 5mín áður enn við áttum að spila voru ljósin kveikt í
salnum og slökkt var á öllu og einhver var að blabla eitthvað
í kerfinu og fólk fór að fara. Þegar ég
spurðist fyrir hvað væri í gangi var mér tjáð að bíða bara ég
yrði látin vita. Skömmu síðar koma gaurinn
sem var búin að vera allan daginn á tánum í kringum mig og
segir mér það að einhver hafi hringt í lögguna og sagt að það
væri sprengja í húsinu! Ég spurði hann
hvað ég ætti að gera, hann benti mér á einhverja hurð og
sagði mér að vera bara við hana, þetta værir eðlilegt í
rússlandi. Núna þyrftu þeir bara að bíða
eftir að lögga væri búin að leita með hundum og þá værir hægt
að halda áfram. Ekkert fannst og partýið
byrjaði aftur. Stemmingin var geggjuð
þarna. Það var alveg stappað, staðurinn
tók um það bill 5-6000 manns.
Daginn
eftir tókum við lestin til St.petursburg og spiluðum á
festivali þar sem var
úti.

Þar fékk ég
aftur full size borðið og náði að nota sömu programingu og kvöldið
áður. Þetta gigg var mjög gott og voru um 10000
manns þarna. Ferðin heim tók um 18 tíma og má
með sanni segja að maður var alveg þreyttur eftir það
ferðalag.Í rússlandi er annað hvort
fólk mjög fátækt eða mjög ríkt, það er ekkert milli stig á
því. Það er eiginlega rosalegt að sjá
litla krakka í sundur tættum fötum að vera
betla. Það er margt flott að sjá þarna enn
samt nokkuð skrítið
land. Næsta ferð
Spánn...
Kv.aggi